komnar inn :DGuđný Diljá Helgadóttir

já núna eru Gletta og Perla komnar inn og ég er búin að vera dugleg að fara á þær :) tamningin á Glettu gengur eins og í sögu,, hún brokkar náttúrulega bara núna en ég er að fara að töltsetja hana, töltið er mjöög laust í henni og enginn vandi að láta hana tölta :) svo er Perla skemmtilegri en hún hefur verið á húsi, alltaf (eða oftast) fús áfram og svona :D en annars held ég að þessi síða sé ekki alveg að virka,,  en ég ætla samt að setja smá myndir hérna inn að lokum :)
Glettablskapaveri118.jpg picture by Perlugudda

Glettablskapaveri030.jpg picture by Perlugudda

Glettablskapaveri083.jpg picture by Perlugudda

Perla og GlettaGuđný Diljá Helgadóttir

já núna fara Perla og Gletta loksins að koma á hús og ég get ekki beðið í orðsins fyllstu merkingu :D..
eftir þessa viku fer pabbi í vinnuviku og eftir hana ætlum við að reyna að ná í þær, það er að segja ef það verður ekki fljúgandi hálka, svo að ég bið til guðs að hann láti ekki verða frost og snjó einmitt þá því að þá verð ég að bíða ennþá lengur !
Þegar þær koma þarf ég að byrja á því að temja Glettu aftur, hún gæti náttúrulega verið búin að gleyma mörgu þar sem að það er ár eða meira síðan hún fór í 2 mánaða frumtamningu, en svo ætla ég að koma þeim í rosa gott form en reyna samt að hafa gaman fyrir þær líka ekki bara mig :)
Brynja V ætlar að hjálpa mér með þær, eða þá að koma með mér í reiðtúra og svona þar sem hún tekur líka inn á svipuðum tíma sína fermingargjöf (meðal annars) sem er jafn gamall og Gletta og heitir Hrafn og er frá Sauðárkróki og undan Kjarval frá Sauðárkróki :) svo að þetta verður sko skemmtilegt vor ;)
svo er Faxaflóamótið að fara að byrja, eftir hálfan mánuð og það verður líka gaman, það er ég alveg viss um, og svo fer ég líka til Århus held ég að það heiti í Danmörku í júlí í sumar á mót með 3 flokki ;) það verður sko pottþétt gaman :D en ég vona innilega að hestaferðin (ef það verður) verði ekki á sama tíma, ég vil alls alls alls ekki missa af henni, hún er svo óendanlega skemmtileg :)
en þegar merarnar eru komnar inn lofa ég að blogga oftar og setja oftar myndir :)
en þá held ég að það sé bara komið í bili :)

allir komnir í vetrarfríGuđný Diljá Helgadóttir

Ég er nú ekki búin að vera dugleg að blogga hérna, enda er ég alls ekki viss um að neinn skoði þetta nema þá ég og Brynja,, en það sakar svosum ekki að setja eitt nýtt blogg hérna.
jlin08109.jpg picture by Perlugudda
soldið skrítin augun í hestum, eins og það sé eitthvað ''eld''gos undir augasteninum.. en þetta er Lassi

Milli jóla og nýárs fóru ég og pabbi ríðandi frá Ási að Svínafelli þar sem að við rifum undan þeim öllum, eða þeim sem voru á járnum, og svo enduðum við með að reka þau útí sel þar sem að hestarnir hans Ármanns eru. Það gekk bara mjög vel og trippin sem hlupu laus með alla leiðina rétt héldu í við okkur þar sem þau eru náttúrulega ekki í neinu formi. Svo reikna ég með því að við tökum Perlu og Glettu inn helst í febrúar og ég hlakka svoo ótrúlega mikið til :) þangað til verð ég að láta Hamal og Öðling duga, en mamma á þá og er með þá á húsi núna, Hamall er brúnn og frekar stór og með mjög skemmtilegan persónuleika, en Öðlingur er frekar gamall (eða það höldum við) en við fengum hann í skiptum fyrir hund einhverntíman fyrir löngu og hann er búin að vera alveg ótrúlega góður, töltir eins og engill en brokkar mjög hast, Brynja (systir mín) keppti einusinni á honum og gekk bara mjög vel, man samt ekki í hvaða sæti hún lenti og hann var bara einn af aðal barnahestunum og smalahestunum okkar einusinni, núna erum við náttúrulega flutt úr sveitinni og smölum ekki lengur, en hann er alveg ótrúelga góður í stutta reiðtúra líka :) en við vitum sensagt ekkert um hann nema að hann heitir Öðlingur og er brúnskjóttur, ekkert undan hverjum hann er eða hvað hann er gamall eða neitt :/
jlin08104.jpg picture by Perlugudda
Perla mín :)

Annars er voðalega lítið að frétta af hestunum.. þeir eru allir mjög vel á sig komnir, enginn með einn einasta hnjúsk eða neitt.. svo að ég ætla bara að enda þetta á nokkrum myndum og vona að einhver nenni að lesa þetta Laughing

jlin08112.jpg picture by Perlugudda
þetta er nú soldið dimm mynd en Gná er lengst til vinstri, svo Perla og svo Gáski sem passar að Perla fari ekki neitt :)

smá fréttirGuđný Diljá Helgadóttir

ég fór í sveitina um dagjinn og ætlaði að taka fullt af nýjum myndum af hestunum en gleymdi myndavélinni!.. það eina sem ég ætlaði sko ekki að gleyma, en þannig fór nú það. Nanna frænka mín var líka í sveitinni hjá ömmu sinni sem býr í efribænum og hún var með sýna myndavél svo að ég tók nokkrar myndir á hennar vél en á eftir að fá þær sendar, þá skal ég strax setja þær hingað inná. En hestarnir sögðu annars bara allt gott, öll orðin feit og pattaraleg og loðin :).. við fórum fyrst til þeirra á fimmtudagskvöldið (soldið seint) og það var svartamyrkur og snjókoma en annars mjög gott veður, en þegar við komum að girðingunni útá Ási þekktu hestarnir okkur ekki og hlupu bara í burtu þegar við lýstum á þá með vasaljósinu okkar (svosum ekki skrýtið) svo að við reyndum að lýsa á okkur sjálfar og kalla til þeirra og þau þekktu greinilega röddina því að þá róuðust þau og komu til okkar. Við klöppuðum þeim bara og knúsuðum og héldum heim, vildum helst vera komnar heim áður en það færi að birta aftur hehe Laughing næsta dag fórum við aftur til þeirra og þau þekktu okkur strax þá og tóku vel á móti okkur, við vorum inní girðingunni og það mátti ekki miklu muna að hún Gletta mín yrði uppáþrengjandi, en hún lætur mann ekki fá frið, soldið forvitinn og finnst gott að smakka á því sem að hún kannast ekki við, en annars er hún bara blessað blómafræ :).. Perla var bara í góðum gír, feit og falleg :).. en ég er ekkert sérlega dugleg að blogga hérna enda ekki mikið að segja, og voðalega fáir sem skoða þetta hvort eð er, en ég er allavega búin að blogga smá :).. svo uppfærði ég um flesta hestana (setti fleiri myndir og svona) en ég reyni að gera meira hérna síðar :)
-Guðný

Heimaslátrun á mýrinniGuđný Diljá Helgadóttir

Miðvikudagjinn 1 október fór ég með pabba, Sunnevu og Evu í sveitina til að fara að slátra, sem mér finnst ótrúlega gaman þó að ég sé nú frekar mikill dýravinur :P við komum um kvöldið og Lydía frænka mín kom sama dag frá Höfn þar sem hún er í skóla og við tvær gistum í auðu húsi fyrir ofan búðina og horfðum á mynd og gerðum ýmislegt skemmtilegt. Svo næsta morgun löbbuðum við niðureftir til ömmu og afa og fengum okkur aðeins að borða, amma var á fullu að gera kökur fyrir afmælið hans Palla (sem er litli bróðir hennar Lydíu) svo að við gætum haft smá afmæliskaffi þegar hann (og Sunneva) kæmu heim úr skólanum. Ég og Lydía vorum ráðnar í að gera krem á súkkulaðuskúffuköku og við fórum yfir (í Hemru þar sem Lydía býr) og gerðum þar rosalega gott krem, allskonar á litinn og ég smakkaði það margsinnis til að fullvissa mig um að það væri nógu gott til að setja á kökuna :P hihi..
en svo fórum við með það yfir (aftur til ömmu) og settum það á kökuna og skiptum henni svona hálfgert í 2, gerðum einn helminginn stelpu fyrir Sunnevu því að hún á afmæli 2 nóvember og hélt sitt afmæliskaffi þarna í leiðinni, og svo var hinn helmingurinn náttúrulega fyrir Palla. svo gerðum við líka æðislega góða hvíta köku með einhverju góðu kremi á milli og svo karamellu yfir :P.. reyndar gerði amma hana :P.. svo komu krakkarnir og þá voru kökurnar borðaðar ásamt öðru góðgæti :D..
 sltrasveitinni001.jpg picture by Perlugudda
kakan
svo smölðuðum við túnin og þegar allt var komið inní fjárhús voru nokkrir lambhrútar dregnir inn í lítið byrgi og nokkrar ær líka, svo var hinu smalað út aftur og þá var komið að gamaninu :D.. þetta voru samtals 9 kindur, 6 lömd og 3 ær.. voðalega gaman..
sltrasveitinni007.jpg picture by Perlugudda
smölunin
sltrasveitinni020.jpg picture by Perlugudda
..
sltrasveitinni046.jpg picture by Perlugudda
smalað út aftur..
sltrasveitinni075.jpg picture by Perlugudda
sláturféð
svo fórum við inn og borðuðum kvöldmat og svo keyrði Sigrún (mamma henanr Lydíu) okkur útá Höfn í heimavistina sem Lydía er í og skildi okkur eftir þar og svo fórum við í skólann næsta dag, það var bara ágætt,, allt öðruvísi en hérna á Selfossi en ekkert verra :).. svo fengum við far með Svavari til baka og þá var búið að slátra ennþá meira.. en ekki mjög mikið, um kvöldið fórum við (ég og Lydía) svo með allan afganginn (innifli, skinn, hausar, fætur o.fl.) síðan úr slátruninni útá ruslahauga, fyrst var dráttavélin eitthvað treg að komast í gang en það þurfti bara að draga hana smá fyrst. Það var ótrúlega kalt og ég var alveg að frosna á puttunum og tánum, en við sensagt keyrðum þetta útá ruslahauga og Lydía dráttavélasnilli bakkaði kerrunni uppað gröfinni þangað sem þetta átti allt að fara, svo ætluðum við að opna hlerann og þetta átti allt að renna út og í gröfina en þetta þrísti svo á hlerann að við gátum ekki opnað hann og til allrar hamingju vorum við með kvísl og skóflu svo að við reyndum að moka mestu út, tókum bara skinnin og hentum þeim á sinn stað en svo þegar að inniflunum kom ákváðum við að nota kvíslina en það var nú ekki svo auðvelt eins og það hljómar. Þetta var náttúrulega búið liggja á kerrunni allavega eina nótt og var frosið fast við botninn !.. svo var þetta ótrúlega þungt og ógeðsleg lykt! guð minn góður ég held að ég hafi aldrei á æfinni fundið svona ógeðslega lykt!.. þarna vorum við í allavega einn klukkutíma, að frjósa úr kulda og loksins þegar við náðum að opna hlerann var svo lítill þrýstingur á öllu jukkinu (við vorum búnar að taka svo mikið af með kvíslinni) að þetta rann ekkert ofaní gröfina og að við þurftum að íta því af kerrunni og það var heldur ekki eins auðvelt og það hljómar því að það var náttúrulega frosið fast ennþá!.
sltrasveitinni121.jpg picture by Perlugudda
Lydía í dráttavélinni á leiðinni heim
en þegar við loksins komum heim komu Jónína og Óli (systir hans pabba og maðurinn hennar) og krakkarnir, Óli Jón og Guðmundur og við horfðum á mynd með Óljóni (Óla Jóni) og fórum svo að sofa. Næsta dag gerðum við aftur krem og kökur því þá æltaði Palli að halda afmælisveislu fyrir vini sína, við hjálpuðum svo aðeins til við að finna skemmtielga leiki fyrir krakkana þegar þeir komu og svo komu Anna og Íris. Við fórum niðureftir og vorum eitthvað að leika okkur þar, komum svo aftur inn og fengum okkur smá kökur síðan úr afmælinu, svo fóru Anna og Íris. Við (ég, Lydía, Sirgún og Guðmundur) smöluðum þá inn og ákváðum svo hvað ætti að setja á og hvað ætti að slátra.
sltrasveitinni152.jpg picture by Perlugudda
smölunin
 Svo gistum við hjá ömmu og afa. Pabbi, Sunneva og Eva fóru heim á laugardagjinn til að komast í vinnu eða eitthvað þannig. 
sltrasveitinni042.jpg picture by Perlugudda
Kjölur, hundurinn hennar Lydíu
Á sunnudagjinn hjóluðum við svo útá Ási og heilsuðum uppá hestana sem tóku vel á móti
okkur, Gletta er orðin svo sæt, ef satt skal segja þá leist mér eiginlega betur á Gleði þegar þær komu úr tamningu, mér fannst hún fallegri, en valdi samt Glettu sem fermingargjöf (mátti velja) en núna finnst mér Gletta miklu fallegri, það er eins og það sé búið að klippa faxið á Gleði, það er svo beint og svona, (reyndar er Perla ekki faxprúð og Tývar, pabbi Glettu ekki heldur svo að hún er með miklu minna fax en Gleði en það er allt í lagji, maður ríður ekki á faxinu :) svo að ég hlakka ekkert smá til að fara að vinna með Glettu í vetur :D.. svo var Perla náttúrulega eins sæt og alltaf, hún er sætust af öllum :D
sltrasveitinni177.jpg picture by Perlugudda
Gleði og Gáski
sltrasveitinni174.jpg picture by Perlugudda
Gletta og Gleði
sltrasveitinni172.jpg picture by Perlugudda
og Perla sætasta :)
svo fór Lydía í veiðiferð með sinni fjölskyldu og ég fór út að skokka á og kom fór síðan í sturtu og svo kom Svavar og ég fór með honum heim á Selfoss.
Svo þetta var bara mjög skemmtilegt og gaman að hitta alla :D
þess má geta að Bóthildur, kindin mín eignaðist einusinni gimbur sem ég skírði Litlu-Krúnu því að hún var alveg eins og amma sín sem ég átti og hét Krúna (hún var mamma Bóthildar) og þessi Litla-Krúna var sett á fyrir mig því gamla Krúna mín dó útaf fæðingarerfiðleikum :(.. en svo eignaðist Litla-Krúna í vor rosalega sæta gimbur en í sumar var hún soldið í því að hoppa yfir girðingar með lambið sitt og ég var mjög hrædd um að það þyrfti að slátra þeim báðum, var alveg viss um að það ætti að slátra gimbrinni allavega! en svo var Kápu, kindinni hennar Sunnevu slátrað núna því hún var svo gömul svo að Sunneva fær í staðin gimbrina hennar Litlu-Krúnu :D.. og Litla-Krúna fær líka að lifa :D.. ég er svo ánægð.. ég ætla sko að kenna henni þá lexíu að það er dauðadómur að hoppa yfir girðingar, þannig fór fyrir Gilitrutt minni um árið :(.. 
sltrasveitinni035.jpg picture by Perlugudda
gimbrin, Litla-Krúna og efst er Bóthildur
en ég ætla að segja þetta gott í bili og vona að einhver hafi nennt að lesa þetta :) bless í bili

-Guðný

réttir í ÁfangagiliGuđný Diljá Helgadóttir

já ég fór sensagt með pabba, Sunnevu og Brynju í réttir í Áfangagili á síðasta fimmtudag og það var bara gaman :D eitthvað um 3000 kindur og álíka mikið af fólki  :D  en þarna voru kindur með allt að 5 horn í allar áttir og voðalega skemmtilegir litir. Þess má geta að þarna stoppuðum við einusinni í hestaferð og gistum en það var árið 2006 held ég alveg örugglega, en þá voru allavega Íris og Anna með :Þ. Svo er ég líklega að fara í sveitina eftir skóla á morgun til að fara að slátra á fimmtudegjinum >D. Lydía (frænka mín) ætlar að koma frá Höfn þar sem hún er í skóla og vera með mér og svo förum við líklega saman í skólann þar á föstudegjinum og þá fæ ég að sjá skólann hennar!. það verður voðalega gaman :D  ég er ekki búin að ákveða hvort að ég verð alveg yfir helgina en ég reikna nú með því þar sem að Anna og Íris koma líka :) (þær eru gamlar skólasystur mínar) allavega Íris, Anna líka ef að hún fær far :).. það væri alveg frábært ef þær kæmu, ég er ekkert búin að sjá Önnu síðan á Góuhofinu og það var sko í mars! nákvæmlega 2 mars sá ég hana síðast :/.. ekki gott!.. en ég ætla að láta nokkrar myndir frá réttunum að lokum :)..
bless í bili..
rttirfangagili005.jpg picture by Perlugudda
það var rekið inní réttirnar í hollum, allar kindurnar hefðu aldrei passað hehe :D en þetta er sensagt eitt af þessum hollum, ég og Brynja erum alveg lengst til vinstri
rttirfangagili027.jpg picture by Perlugudda
þarna flæða þær inní réttirnar :D.. ég sá svo líka gimbur sem var ALVEG eins og litla Krúna mín, með sokka á báðum afturfótum og einum afturfæti og svo var hún með krúnu :D
rttirfangagili022.jpg picture by Perlugudda
ég og Brynja að ræða málin hvaða kind verður næst fyrir valinu (tókum bara hyrndar kindur :þ)
rttirfangagili023.jpg picture by Perlugudda
Sunneva, ég og Brynja :D
rttirfangagili038.jpg picture by Perlugudda
stoltar með þessa fallegur svörtu á sem við náðum :P

ég var ađeins ađ leika mér :PGuđný Diljá Helgadóttir

ég fór aftur uppí Holtakot um helgina og það var mjög skemmtilegt eins og við var að búst :D.. það var verið að rífa undan nokkrum og ég tók stóru myndavélina hennar mömmu til að ná aðeins betri myndum heldur en síðast og það virkaði alveg :D. margar ágætis myndir en Ísing var ekki alveg eins hlaupaglöð og síðast en Villingur kom í staðinn :) næst hlaupa þau bara saman vonandi :D.. en ég prófaði aðeins að breyta einni mynd af Villingi og svona varð útkoman
Villingur.jpg picture by Perlugudda
hann er alveg ótrúlega sætur, en hann er sensagt fæddur í Holtakotum, undan hryssu sem heitir Þruma og er brúnskjótt og Illingi frá Tóftum sem er náttúrulega rauðskjóttur. Hann verður örugglega mikill gæðingur í framtíðinni :D

Holtakot Guđný Diljá Helgadóttir

Á miðvikudagjinn fór ég með Brynju Valgeirsdóttur og pabba hennar í sveitina þeirra, Holtakot. Það var soldil rigning en samt mjög gaman :D þau eru með 18 hross þar (eiga þu ekki alveg öll) en þar á meðal 2 falleg folöld :)..  ég skal reyna að telja upp hérna alla hestana þeirra: Hrafn, Funi, Héla, Auður, Hnokki, Fyðlungur, Stormur, Gustur, Ísing, Villingur, Þruma, Mósa, Spóla, Skuggi og Snúður. Vona að þetta séu allir :).. en við tókum mikið af myndum (þó aðallega af Ísingu) og svo fórum við að leggja girðingarstaura milli annara girðingastaura í einu túninu og ég og Brynja  (reyndar bara Brynja) keyrðum dráttarvélina meðan pabbi hennar Brynju (Valgeir) setti staurana á sinn stað. Ég ætla að láta nokkrar myndir frá þessari skemmtilegu sveitaferð í lokin :)

singoghinir093.jpg picture by Perlugudda
Ísing litla Gosadóttir (Gosa frá Ísafyrði)  á sprettinum.
singoghinir069.jpg picture by Perlugudda
Funi Kjarvalsson (Kjarvals frá Sauðakróki)
singoghinir067.jpg picture by Perlugudda
Villingur Illingsson (Illings frá Tóftum)
singoghinir060.jpg picture by Perlugudda
fermingargjöfin hennar Brynju, Hrafn frá Sjávarborg (undan Kjarval frá Sauðakróki)
singoghinir071.jpg picture by Perlugudda
Ísing á bak og burt
singoghinir059.jpg picture by Perlugudda
Snúður sæti (er ekki viss undan hverjum hann er)
singoghinir079.jpg picture by Perlugudda
Ísing komin aftur (soldið hreyfð mynd)
singoghinir052.jpg picture by Perlugudda
Héla fallega frá Syðri-Rauðalæk, undan Djarfi frá Dísarstöðum.
singoghinir047.jpg picture by Perlugudda
Villingur sæti :)
singoghinir041.jpg picture by Perlugudda
með Þrumu, mömmu sinni en Þruma er undan Kubbi frá Miðengi
singoghinir035.jpg picture by Perlugudda
Stormur þarna fremstur en hann er undan Glaum frá Kjarnholtum
singoghinir101.jpg picture by Perlugudda
og endum þetta með Ísingu fyrirsætu :)

Hestaferđ 08Guđný Diljá Helgadóttir

Hestaferðin í sumar var sko miklu miklu skemmtilegri en ég var búin að íminda mér :) við byrjuðum á því að keyra hestana í gyrðingu sem er við hliðina á steinarétt á Hunkubökkum (enduðum eina hestaferð þar einusinni) og þar var lagt af stað, stóðinu var bara sleppt í fyrsta sprettinum og ég var á Perlu minni fremst og það var ótrúlegur æsingur í lausu hestunum og bara geðveikt gaman :D svo þegar lengra leið á dagjinn mætti Eiríkur okkur og hjálpaði okkur að finna Blágil sem var fyrsti áfangastaðurinn.. þar var bara ágætis aðstaða og nóg pláss en kamarinn var ónothæfur, (svosem ekki skráður það en það var svo vond lykt í honum að það var bara sjálfsmorð að reyna að anda þar inni!)
svo var haldið útí Skaftárdal næsta dag í rigningunni og þar skildi Eiríkur við okkur en lánaði okkur 2 af hestunum sínum, Sókn og Hálf. Svo var haldið í Hólaskjól
(sem er þekkt fyrir að vera með sæta rebbaunga í fóstri en núna voru engir) og þar gistum við í 2 litlum skálum því að það voru 2 hollendingar með stóra skálann!.. en við fengum þó að borða þar fyrsta kvöldið. Í skálanum sem að ég gisti í voru Hanna, ég, pabbi, Brynja og Sunneva og í hinum voru Ármann, Hólla, Ingibjörg, Óskar, Víðir og Alla.
Næsta dag fórum við í blaut og köld hestafötin og lögðum af stað uppí Skælinga
(sem er skáli einhverstaðar þarna á fjöllunum) það var rigning alla leiðina en logn :).. svo fórum við bara aftur útí Hólaskjól og þá komu Solla og Ingvar og svo á eftir þeim komu Hafdís og Jói með Svanhvíti og Sigurð, þau voru að koma með smá mat sem Hólla og Ármann gleymdu heima sem átti samt að vera með í ferðinni og komu í mat í leiðinni.. svo um kvöldið fóru þau og við fórum að sofa, Solla og Ingvar sváfu í okkar skála.. en þeir voru það nálægt hvorum öðrum að þetta var nú bara frekar eins og 2 herbergi með smá bili á milli sín..
næsta dag fórum við svo í Framgil og gistum þar, það var rigning alla sprettina nema einn, þá var sól,, en á leiðinni þangað stoppuðum við í Álftavötnum
(kofanum sem við gistum í einusinni þar sem engin borðáhöld voru svo við þurftum að borða með puttunum) og sá skáli er orðin miklu betri en síðst, komin borðáhöld, fleiri rúm en reyndar er kofin sjálfur aðeins byrjaður að hrynja en ekkert svo að maður taki eftir.. en já í Framgili var voðalega lítið pláss svo að ég, Brynja, Hanna og Ingibjörg gistum í tjaldvagni sem var tekinn með því að við vissum alveg að það yrði plásslítið þarna.. en ég svaf nú bara vel, annað en Ingvar virðist hafa gert, hann lýsti því yfir að hann hafi sofið á hálf sentimeters þunnri dínu sem var 30 sentimetrar á breidd.. en í fyrsta sinn í ferðinni fórum við í þurr föt um morguninn því að Ármann, sá snjalli snillingur fattaði að hengja öll blautu fötin okkar inná klósettið (sem var reyndar næstum því stærra en skálinn sjálfur, þetta var svona gámur sem var búið að grafa inní svona holu) svo grillaði pabbi fyrir utan klósettið/gáminn og þegar hann var búin að því setti hann grillið sem var ekki slokknað á inní klósettið/gáminn og lét kolin kólna þar og að fara á klósettið þá var næstum eins tilfinning og að koma inní gufubað!..
en sensagt, morguninn eftir lögðum við af stað útí Botna í sól og blíðu og smá vindi sem pirraði Ingvar alveg rosalega, og þar gistu hestarnir síðustu nóttina og við gistum í Skaftárdal og komumst í sturtu og svona :).. en Ingibjörg gisti ekki með okkur þar því að hún þurfti að vinna næsta morgun og fór þessvegna heim og tók tjaldvagninn með sér :)
þegar við lögðum af stað útí Botna næsta dag til að halda áfram var Skaftá byrjuð að flæða yfir vegjinn svo við bara rétt sluppum, það var víst Skáftárhlaup en við sögðum ekki Sollu frá því fyrr en um morguninn því að annars hefði hún sko farið heim og gist þar :).. svo lögðum við af stað tú ðe fænal pleis og Brandur og Stína komu á móti okkur og við fórum með þeim heim til þeirra og fengum okkur nesti og svona, svo fóru pabbi og Ingvar og Hanna að sækja bílana (Hanna tók einn bílinn og flýtti sér beint heim því hún var að verða of sein í vinnu) og ég, Brynja, Hólla, Solla og Ármann héldu, áfram til Stebba í Þykkvabæ sem var sensagt ðe fænal pleis.. Stína og stelpan hennar fygldu okkur smá og svo snéru þau við heim til sín og svo stoppuðum við til að skipta um hesta og þá komu pabbi og Ingvar og pabbi var með kerru og við tókum Perlu, Lassa, Þoku og Kólgu og keyrðum þau heim að Ási til Glettu, Gleði og Gáska sem eru búin að vera þar í gyrðingu í allt sumar en Ingvar fygldi hestafókinu og keyrði svo alla heim þegar komið var í Þykkvabæ. En þá var samt bara einn sprettur eftir sem við sensagt slepptum og um kvöldið þegar allir voru komnir heim fórum við í kaffi til Sollu og Ingvars og næsta dag kom ég hingað á Selfoss með Sollu og Ingvari á meðan pabbi og Ármann sóttu afgangs hestana útí Þykkvabæ.


583.jpg picture by Perlugudda

607.jpg picture by Perlugudda

602.jpg picture by Perlugudda

128.jpg picture by Perlugudda
nokkrar flugur >(
081.jpg picture by Perlugudda

593.jpg picture by Perlugudda
þarna stendur Eiríkur og bíður eftir okkur
208.jpg picture by Perlugudda
Alla, Ingvar, Hólla, Brynja og Sunneva
111.jpg picture by Perlugudda
Ingvar orðin soldið þreyttur:'D
585.jpg picture by Perlugudda
141.jpg picture by Perlugudda

189.jpg picture by Perlugudda

137.jpg picture by Perlugudda
Ingvar mikilmenni ætlaði að vaða yfir lækinn en hesturinn hrasaði ofaní og sneri við í ofboði :'D það sést greinilega að nebbinn hefur lent oní :)
199.jpg picture by Perlugudda

747.jpg picture by Perlugudda

752.jpg picture by Perlugudda

284.jpg picture by Perlugudda
bleikálótta gengið 8)


ps. Þetta blogg var tekið af www.blog.central.is/7ss (ég skrifaði það samt)

mýrarhestar :)Guđný Diljá Helgadóttir

þessi síða er ætluð hestunum okkar á fagurhólsmýri í Öræfum (búum reyndar á Selfossi núna en bjuggum þar) og hér á ég eftir að setja inn allskonar um þá og blogga stundum og svona :)

- Guðný

Auglýsing

Könnun

hvađa litur er fallegastur á hestum?